Aðalvalmynd

Komið að lokum

23. desember 2006 klukkan 07:59
Jæja þá er þetta skiptinám á enda og fer ég útá flugvöll eftir 10mín þannig að ég ákvað að smella inn einu stuttu bloggi rétt áður en ég fer.

Þessi tími hérna í Austurríki er búinn að vera einn sá besti í mínu lífi og hef ég ekkert til að sjá eftir að hafa komið hingað. Fólkið sem ég er búinn að kynnast á síðustu mánuðum er frábært og þetta er fólk sem maður á eftir að halda sambandi við alla æfi held ég og hefur þetta opnað heiminn fyrir mér mikið. Maður kynnist nýjum hlutum um mismunandi kúltúr milli landa á hverjum degi eftir því sem maður kynnist fólkinu hérna betur og betur. Einnig er frábært að hafa gistingu á mörgum stöðum í heiminum núna sem maður hafði ekki hugsað sér að heimsækja áður en núna fer ég að safna til að geta farið á þá flesta, írland, florida usa, finnland, canada, tyrkland og fleirri staðir eru allir komnir á listann núna ;)

En jæja VÁ hvað þessi vika var erfið, eh gott fólk að fara héðan á hverjum degi og erfitt að kveðja og dagurinn í dag og gær held ég að hafi verið erfiðastur þar sem ég var að kveðja þá sem ég kynntist best. Jæja nóg af væli, naut tímans hérna í Wr. Neustadt til fullnustu og vonast til að koma hingað í náinni framtíð aftur.

Mbk. frá Austurríki
Bjössi aka Björnzy
Ein grosses Bier bitte...

Snjóbretti er málið

15. desember 2006 klukkan 09:28

Jæja það er löngu kominn tími á færslu enda mikið búið að gerast í herbúðum austurríkjafaranna uppá síðkastið.

Ég fór í smá ferð síðustu helgi og það er skemmst frá því að segja að þetta var ein besta ferðin hingað til í þessari ferð þó svo að mikið skemmtilegt hafi gerst. Málið er að ég fór á snjóbretti í fyrsta skipti í 2660m hæð á jökli í ölpunum, fyrsta skipti sem ég set á mig bretti og viti menn... ég var eins og meistari (næstum því) en allavega þá komu gamlir hjólabrettataktar vel að notum þarna í brekkunni ;)

Allavega til að gera langa sögu stutta þá datt ég íða (eins og tíðkast í skíðaferðum) í 3daga í miðjum ölpunum og fór á snjóbretti í einn dag í 8 klst og það var nóg fyrir mig í fyrsta skipti :D
Fór með kláf uppí 2450m hæð og þaðan öðrum í 3029m hæð og renndi mér niður eins og fagmaður að í 2450m hæð og shitt hvað þetta var gaman :D

En gott af minni helgi, kommentið um ykkar og svo smá punktar um hina strákana...

ps. Rúnar fór þessa sömu helgi í aðra brettaferð og skemmti sér konunglega ;)

Elmar fékk konuna sína hingað 29. Nóv og allt gott að frétta af þeim ;)

Rúnar fór heim á klakann á þriðjudagskvöld og allt gott að frétta af honum, hann fékk sér allavega BB þegar hann hringdi í mig :(

Við erum allir búnnir í skólanum og erum ekki að gera neitt nema að hanga núna og leika okkur ;)

Jólamarkaðirnir í Vín verða fyrir valinu næstu daga og jólainnkaupin þar ;)

Glüwien er mjög gott ;)

Myndir frá ölpunum eru komnar inn fyrir þá sem vilja

Kv. Björn

Ein grosses Bier bitte...

Bifrastarbrandarar.....þakkir til Bjaddna, hann á þá flesta

28. nóvember 2006 klukkan 19:41

Rakst á eitt word skjal sem að ég hafði búið til eftir jeppaferðina í feb sl. Þar komu þónokkrir ótrúlega lélegir brandarar í ljós, en náðu samt eitthvernveginn að slá í gegn (hugsanlega af því að það voru allir fullir og með svefngalsa um það leiti sem brandararnir byrjuðu að fjúka).

Bjaddni átti náttúrulega meirihlutann af þeim þar sem hann er í meistaradeildinni í því að búa til lélega brandara.
Ég hef því ákveðið að deila þessum bröndurum með ykkur sem að eru 70% eftir Bjaddna og svo áttu eitthverjir aðrir restina. Ég veit að þeir sem voru í jeppaferðinni í feb sl. eiga eftir að glotta yfir þessu og rifja upp þvílík snilldarferð þetta var!

Bon apetit!

Er Sæmundur eða kraftaverk?
Er Elmar eða skráma?
Er Jóhann eða hún?
Er Jafet eða meter?
Er Sóley eða drangi?
Er Þórarinn eða út?
Er Einvaldur eða orsök?
Er Þorsteinn eða hnullungur?
Er Heiðar Lár eða hár?
Er Bryndís eða dúr?
Er Guðjón eða rafeind?
Er Elmar eða blettur?
Er Bergsveinn eða stúlka?
Er Vilhjálmur eða hanski?
Er Ingibjörg eða klettur?
Er Bergljót eða viðbjóðsleg?
Er Sveinlaug eða pottur?
Er Hlédís eða drottning?
Er Eyvindur eða rok?
Er Valtýr eða Þór?



Tékkiði svo á nýju könnuninni!

Later,
Elmario Da Vinci

Ein grosses Bier bitte...

Björn rétt náði að vekja mig fyrir enskupróf. Prófið byrjaði klukkan 14:30!!

24. nóvember 2006 klukkan 10:37
Jæja það er þokkalega langt síðan síðasta færsla kom inn og það er einföld skýring á því, Elmar er of latur og við Rúnar eiginlega líka þannig að við Rúnar ætlum að skrifa hálfa færslu á mann, nennum ekki í heila færslu hver.

Ég byrja og Rúnar skrifar um helgina sem Danni Tiger kom til okkar. Verði ykkur að góðu!
 

Ég ákvað í síðustu viku að fara til Graz með Kaitlyn og Satu. Strákarnir segja að ég sé hommi að fara með tvemur stelpum í ferðalag, en ég held að þeir séu bara abbó ;). Allavega þetta var snilldarferð og ég sé ekki eftir að hafa farið. Rólegt “djamm” á fimmtudagskvöldi eftir mjög góðan mat á hótelinu og svo föstudagurinn tekinn snemma. Skoðuðum þessa flottu borg allan daginn í 20stiga hita og glampandi sól, fengum okkur að borða og drekka með ;) Svo skoðuðum við jólamarkaðinn á aðaltorginu sem var verið að setja upp og þetta er það sem kemur manni í jólagírinn, upp með nokkra jólamarkaði á íslandi. Enduðum svo á því að taka næstu lest sem við sáum og það voru kannski mistök... hver veit, hún var fjóra tíma í staðin fyrir tvo eins og venjulega. En það reddaðist og voru drykkjuleikir spilaðir sem endaði helvíti skemmtilega, fólk var orðið aðeins íðí þegar við mættum í ammælispartyið uppá heimavist.
 

Jæja, þá tekur Rúnar við eftir hommalega frásögn frá hommalegri ferð Björns!
 

Tigerinn tilkynnti okkur það að hann kæmi um helgina. Við biðum eftir honum en þar sem síminn hans virkaði ekki gátum við ekki náð sambandi við hann. Frábært. Við mættum honum óvart á vappi nálægt skólanum okkar þegar við fórum að fá okkur að borða. Þá var hafði hann spurt hvar Íslendingarnir byggju og fengið einhverjar leiðbeiningar um 300 metra út í buskan. Heppileg tilviljun að hitta á hann því annars hefði hann þurft að bíða í svona klukkustund eftir okkur. Danni leit vel út að vanda og það var lítið mál að plata Daníel út í aðra máltíð þrátt fyrir að hafa verið rétt búinn að gæða sér á dýrindis máltíð í Vín.
Ég fékk æði fyrir Kebab í síðustu viku, hugsaði um þá dag sem dimma nótt. Ég dró strákanna með mér á slíkan stað. Þeir vildu að sjálfsögðu ekki bragða á þessum lúxus snæðingi og biðu á meðan ég lauk mér af og til að þeir gætu farið á McDonalds. Þegar við komum aftur upp á vist slöppuðum við af þangað til við drógum Daníel á körfuboltaæfingu.
Á æfingu létum við hann vera í hinu liðinu því við héldum að hann myndi vera svo lélegur. Annað kom á daginn og Tígurinn brilleraði. Hann hélt sínu liði algjörlega uppi og ég held ég hafi aldrei séð hann spila svona vel. Okkar Elmars lið vann samt auðvitað enda erum við Elmar algjörir körfuboltasnillingar. Okkur var meira að segja boðið að taka þátt í móti með þeim um næstu helgi, það var sett í nefnd og við tökum ákvörðun í næstu viku.
Þegar við komum heim helltum við Tigerinn þokkalega fullann.

Hann afrekaði það að taka um 200-300 myndir þetta kvöld og var fólk farið að vera hálf hrætt við öll þessi flöss.
Við fórum þá með hann niður í bæ og drukkum með rekstarstjóra ónefnds skemmtistaðar niðri í miðbæ Wiener Neustadt. Vegna fjölskylduvandamála var hann búinn að vera fullur á þessum stað í þrjá daga. Hann skipaði afgreiðsludömunum að ná í drykki handa okkur og fengum við frítt að drekka að vanda. Seinna um kvöldið fengu stelpurnar nóg af dónaskapnum í honum og löbbuðu allar út nema ein.
Greyið maðurinn að vera svona mikill fyllibytta, en eins og hann orðaði það að þá er hann atvinnufyllibytta. Alveg búinn að missa allt niður um sig. En jæja, frítt áfengi maður! DJAMM!!!
 

Á laugardaginn skoðuðum við Vínarborg og Elmar sagði Danna hvað öll húsin hétu. Ótrúlegt hvað Elmar er með þetta allt á hreinu. Danni slakaði ekkert á myndarvélinni. Húsin tóku þó betur í myndartökurnar heldur en krakkarnir kvöldið áður.
Að sjálfsögðu enduðum við svo fullir um kvöldið. Ætluðum að taka síðustu lest kl. 01:20. og djamma frekar niðri í Wr. Neustadt til að geta farið heim þegar við vildum. Við tókum leigubíl til að verða nú ekki of seinir, það heppnaðist ekki betur en það að við mættum á lestarstöðina 01:23 og enginn lest sjáanleg.

Næsta lest kom kl. 04:44. Frábært, við löbbuðum af stað að leita að einhverjum stað. Löbbuðum heillengi þar til við fundum klúbb en þar máttum við ekki fara inn því við kláruðum bjóranna okkar fyrir utan staðinn. Fáránlegt. Við settumst niður og bölvuðum þessum dyravörðum. Þá kallar Björn: Nau nau nau, sjáiði þessar gellur. Ég lít og sé þessar rosalegu gellur í fjarska, þegar þær komu nær kemur í ljós að þetta eru karlmenn í kvenmansfötum og að sjálfsögðu var þeim hleypt beint inn. Við Elmar þurfum eitthvað að fara að athuga okkar gang í þessum málum. Annað hvort að kaupa okkur gleraugu eða einfaldlega skipta um kynhneigð.
Stuttu síðar áttum við okkur á því að Daníel er horfinn. Hann var auðvitað ekki með síma þannig við gátum ekki náð í hann. Við leituðum og leituðum út um allt þangað til við fengum símtal um að hann væri á einhverjum bar í nágrenninu, við fundum barinn og skömmuðum Danna fyrir þetta kæruleysi, hann skildi ekkert í þessum látum.
Hann hafi bara ætlað að fá sér bjór, hann vissi alveg hvenær lestin færi og ætlaði bara að hitta okkur þar. Þvílíkur snillingur.

Eðli Keflvíkinga kom líka bersýnilega í ljós inn á þessum bar. Elmar tapaði fyrir mér í pílukasti og trylltist. Hótaði mér öllu illu nema ég myndi játa meint svindl. Sem er auðvitað bara kjaftæði. Alltaf gaman af fólki sem tryllist yfir einhverju sem skiptir ekki máli. Lov it. Ekki það að ég myndi nokkurn tímann gera eitthvað til að koma slíku fólki í uppnám t.d. með því að svindla í spili og ekki viðurkenna það.

Djöfull er þetta orðin löng og leiðinleg færsla. Shit! Restin kemur í punktum.
 

Komumst heim um kl. 6.

Danni fékk sæng sem ég gleymdi að láta hann fá nóttina áður. Þess má geta að nóttina áður svaf hann með tvær peysur því honum var svo kalt! Ég bara vissi ekki að ég ætti AUKA sæng...
 

Daginn eftir vorum við þunnir.
 

Danni fór heim eftir vel heppnað ferðalag. Gísli, þú misstir af miklu!
 

Við fórum á Tool tónleika. Ég hafði ekki heyrt um þá áður en ég skemmti mér samt konunglega.
 

Ég fékk mér tvo kebab þann daginn. Hef ekki og ætla mér ekki að fá mér slíkan mat í bráð.
 

Hvað gerist ef maður borgar ekki stöðumælasekt? Er há sekt við því? Jói lögga. Kannski þú svarir þessu.


Í þetta sinn náðum við lestinni fyrir 01:20 og komumst heilu og höldnu heim.
 

Það eru komnar myndir frá helginni inn á myndasíðunna okkar. 

Biðst innilega afsökunar á langri og leiðinlegri færslu.

Arnar vinur Björns verður með okkur um helgina, vonandi gerir hann eitthvað af sér sem hægt verður að blogga um eftir helgina.
 

Ps. Mamma og Pabbi, ef þið lesið þetta. Viljið þið þá gjöra svo vel að skilja eftir athugasemd!
 

Kv. Rúnar og Bjössi
  
Ein grosses Bier bitte...

Djöfull elska ég neyslu!

07. nóvember 2006 klukkan 21:31
Það að fylla sig gjörsamlega af góðum mat og drykk er eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Það er bara alveg fullkomlega eðlilegt.

Við félagarnir fengum frí í heila viku í síðustu viku. Elmar skrapp heim að kúra með kærustunni, hitta vini og fá sér Bæjarins Bestu pylsur. Hann lét vel að ferðinni og sagði að það hefði verið geðveikt að komast aðeins til Íslands. Mig er farið að hlakka til að komast heim og kúra mína kærustu. Það verður rosa gott!

Við Björn ákváðum hinsvegar að skella okkur til Slóveníu og Króatíu. Við skelltum okkur á lestarstöðina um morguninn. Fyrsti áfangastaður var Lijubliana, höfuðborg Slóveníu. Minn miði kostaði um 30 evrur en Bjössa miði yfir 50 evrur. Vitið þið af hverju? Jú, ég gat sótt um kort fyrir ungmenni til að fá afslátt í allar lestar. Umsækjendur þurftu að vera undir 26 ára! Bjössi uppfyllir ekki skilyrðin.

Við náðum sex manna klefa og lögðumst kylliflatir og sváfum mest alla leiðina. Ef einhver vogaði sér inn í klefann til að athuga hvort við tveir værum að nota öll sex sætin tjáðum við þeim að svo væri. Djöfull vorum við frekir en við náðum að sofa vel.

Lijubliana er lítil og krúttleg borg með kastala og Tívolí. Við Björn eyddum hálfum degi að leita að Tívolíinu en komumst svo að því eftir mikla göngu að þetta var nafnið á almenningsgarðinum í Lijubliana. Pirrandi! Kastalinn var samt töff.

Elmar hefur þá reglu að maður hefur ekki komið til borgar nema hafa smakkað bjór þar. Ágætis regla og ákvað Björn að setja sér sambærilega reglu nema hún tengdist ekki bjór heldur Mc Donald’s. Einn cheese í hverri borg eins og hann orðaði það. Þannig að við getum sagt ykkur með fullri vissu að Maccarinn er í fínu lagi í Slóveníu. Bjössi mælir með Bigmac.

Við vorum í þessari borg á miðvikudegi og fimmtudegi og sökum þess var næturlífið ekki frásögufærandi.
 

Næst var ferðinni heitið til Zagreb, höfuðborg Króatíu. Við fengum flott hostel á aðalgötunni.


Zagreb er geðveikt flott borg. Næturlífið er snilld og Bjössi segir að stelpurnar þar séu þær fallegustu í heimi. Stelpurnar þar virðast ferðast mikið í hópum. Vanalega 4-5 saman og Bjössa skilgreining er sú að venjulegur stelpuvinahópur í Zagreb sé eins og gelluvinkonuhópur í Reykjavík. Ég hef að sjálfsögðu ekki skoðun á þessum pælingum Bjössa því ég á jú kærustu!

Eftir að hafa eytt helginni í Zagreb tókum við þá ákvörðun að fara heim til Austurríkis. Bæði var öll orka búinn ásamt því að svona ferðalög eru helvíti dýr.

Frá Austurríki er það að frétta að við tókum til í gær og fórum út í búð. Ótrúlegt þrekvirki og það á einum degi. Íbúðin er eins og ný og ísskápurinn er stútfullur af bjór og mat.

Eitt til ykkar lesenda. Ég var að lesa færsluna yfir aftur, er ég mjög leiðinlegur við Bjössa í þessari færslu eða bara smá? 

Gott í bili, Elmar þú átt næstu færslu!

Kv. Rúnar
Ein grosses Bier bitte...

Aftur til fortíðar

01. nóvember 2006 klukkan 06:40
Jæja þá er kominn tími á færslu... mikið búið að gerast og tími til að láta heiminn vita af okkur. Það sem er búið að vera að gerast uppá síðkastið er að við erum búnnir að vera að klára áfanga hérna í skólanum og byrja í nýjum í framhaldi af því. Þetta virðist allt vera að ganga upp og gengur allt vel. Drykkjan hefur minnkað til muna uppá síðkastið enda skólinn farinn að taka sinn toll hérna úti, sem ég veit ekki hvort sé gott eða slæmt, en maður er víst í skiptiNÁMI þannig að það hlýtur að vera gott ;) Í síðustu viku, nánar tiltekið á fimmtudagsmorgun þá fórum við kappar til Pécs (borið fram eins og page á ensku) sem er fimmta stærsta borg Ungverjalands. Þetta var eins og að fara nokkra tugi ára aftur í tíman og aðal bílarnir voru Lada og Trabant, það er seint töff. Leigubílarnir hefðu seint verið kallaðir leigubílar á íslandi en þetta er það sem þeir búa við, allur peningur sem kemur inní landið fer í höfuðborgina Budapest og restin af landinu líður við skort. Þetta var samt ekki alslæmt því þegar komið var inní miðborgina þá er hún nokkuð töff og skemmtistaðirnir í Pécs bara nokkuð nettir, flott uppsetning og skemmtilegir staðir. Jæja, Elmar er að fara til Íslands á morgun og ég og Rúnar erum að fara smá hring um austur Evrópu, ekki ennþá vitað hvert nema Ljubljana í Slóveníu og Zagreb í Króatíu... annað er óákveðið en tíminn sem við höfum er vika, þetta verður fróðleg ferð. Halloween hátíð í kvöld og allt að gerast, fólk að gera sig reddý í búninga og svo verður smá drykkja innifalin, ekki of mikil samt þar sem Elmar þarf að ná flugi í nótt og restin af okkur lest í fyrramálið ;) Jæja nenni ekki að skrifa meira enda enginn sem nennir að lesa of langar færslur... Nýjar myndir á leiðinni inn en ég vara við því að það er mest leiðinlegar húsamyndir af Pécs og Vín... svo nokkrar úr keilunni í gærkvöldi Mbk. frá Austurríki Björn aka. Bjornzy á írsku
Ein grosses Bier bitte...

Hér eftir fylgja nokkrar useless information um okkur félagana...

29. október 2006 klukkan 22:35

Ef þú leitar af Elmar Björn Rúnar á 
www.google.com þá koma 711 niðurstöður á u.þ.b 0.08 sec.
 

Það eru 157 manns á Íslandi sem heita Elmar, 1,761 sem heita Björn og 692 sem heita Rúnar, skv. Hagstofu Íslands.
 

Merkilegt nokk að þá eru flestar niðurstöðurnar á google.com skv. fullum nöfnum með upplýsingar um Rúnar Árnason með 15,900 niðurstöður, Björn Guðmundsson kemur svo á hælunum á honum með 14,200 niðurstöður og Elmar Geir Jónsson síðan með 13 niðurstöður. Sýnir ykkur ágætlega hversu einstakur maður er...
 

Þessar niðurstöður komu með nokkrar skemmtilegar upplýsingar: Það voru t.d. menn sem hafa sama nafn og við í landsliði Íslands í fótbolta á árunum 1960-1969. Þar var fyrir hönd mín Elmar Geirsson, fyrir hönd Björns var það Björn Lárusson og fyrir hönd Rúnars var það Rúnar Guðmannsson.
 

Því miður eigum við víst allir eitthvern nafna sem er skáður í live2cruize klúbbinn...
 
Við erum allir með nafna sem eru heiðurlimir á Reðursafni Íslands... 
Við erum allir með nafna  í Skautafélagi Akureyrar... 
Við erum allir með nafna sem hefur próf í verðbréfaviðskiptum... 
Og við erum allir með nafna á vef sem heitir Takk mæður... 

Ég á nafna sem hefur Björn sem föðurnafn, engan nafna sem er Rúnarsson.

Rúnar á nafna sem er er Björnsson, en engan sem er Elmarsson. Hjúkket... 
Björn á nafna sem er Rúnarsson, en engan sem er Elmarsson. Tvöfalt hjúkket... 

Engar myndir af okkur fundust skv. Fullum nöfnum
 

Þá hafið þið það...
 
Nú vitið þið meira um okkur og okkar heiðursnöfn og ef þið hittið eitthvern sem heitir Elmar, Rúnar eða Björn getið þið alltaf brotið ísinn með eitthverju af þessu...Held samt að sá aðili myndi ekki nenna að tala við ykkur mikið lengur eftir það... 

Later...

Elmario Da Vinci
Ein grosses Bier bitte...

Prag, borgin sem Vin Diesel bjargaði frá algjörri möskun!

18. október 2006 klukkan 01:46
Já, Prag er þekkt fyrir marga hluti en þá einna helst fyrir það að kvikmyndin XXX með Vin Diesel var tekin upp þar. Ótrúlegt alveg hreint!

Við félagarnir fórum þangað á vit ævintýranna síðustu helgi og heimsóttum Gísla og Danna, skólafélaga okkar frá Bifröst. Þeir eru þarna í skiptinámi ásamt Heiðari og Kristjáni sem eru líka skólafélagar okkar frá Bifröst.
Björn lærði af mistökum síðustu ferðar og lagði edrú af stað. Ekki leið þó á löngu þar til hann og Elmar voru komnir með sitthvorn bjórinn við höndina en ég ákvað að vera skynsamur framan af til að allir kæmumst alveg örugglega á leiðarenda.
Svo varð raunin, Elmar og Björn voru merkilega temmilegir þrátt fyrir 6 tíma ferðalag og drykkju.
Þegar í íbúðina var komið náðum við ekki að taka upp úr töskunum né átta okkur á aðstæðum áður en við vorum þvingaðir til að taka staup af íslensku brennivíni. Leigjendurnir þóttust vera búnir að koma upp þeim sið þar á bæ að við mættum ekki gista nema byrja á þessu helvítis staupi, glatað.
Um kvöldið fórum við út á lífið. Þar voru ýmis málefni rædd og mikið hlegið. Það helsta sem kom út úr því var að Zidane verður minnst sem frábærs fótboltamanns en ekki bringuskallara, Danni er höstler af Guðs náð og getur náð í númer hjá hverri sem er en síðast en ekki síst að kærastan hans Elmars missti legvatnið og reyndi að fæða allt kvöldið sem að vísu gekk ekki upp fyrr en daginn eftir, til hamingju Elmar... Örn.
Seinna um kvöldið þegar við vorum að rölta um götur Prag að leita að opnum skemmtistað fann Björn Guðmundsson kunnuglega lykt, hann elti lyktina og hópurinn með og viti menn, við enduðum á Kentucky Fried Chicken. Þann úrvalsmat höfðu Björn og Elmar ekki fengið í háa herrans tíð og héldu upp á það með tvöföldum skammti og auka maís. Danni bað afgreiðsludömuna um skyndibita eða “fast food” eins og hann orðaði það svo pennt og það undir eins. Hann fékk heila fötu af kjúkling og frönskum, þegar hann hafði lokið við fötuna teygði hann sig yfir á næsta borð og nældi sér í bita hjá tveimur dömum sem sátu þar. Þær urðu eitthvað ósáttar með þetta uppátæki hans og strunsuðu beinustu leið út. Danni sá ekki hvað var athugavert við þetta og gæddi sér einnig á restinni af kókinu þeirra sem þær skildu eftir. Ég fékk mér skitinn Zinger borgara, hann var glataður, einhverskonar Mini útgáfa af íslensku útgáfunni, ömurlegt.

Daginn eftir skoðuðum við Prag með Danna leiðsögumanni. Í stærsta kastalanum hittum við óvænt 50 manna íslendingahóp í skoðunarferð. Skemmtilegt nokk, við vorum fljótir að forða okkur þaðan og halda áfram að skoða það sem merkilegt getur talist í Prag. Eftir menningarlegan dag í Prag fórum við heim og gerðum okkur klára fyrir næsta skrall.
Um kvöldið fór hópurinn fór út að borða á Restaurant Reykjavík ásamt Heiðari, Kristjáni og Þóru vinkonu Gísla. Það var mjög fínt nema hvað þjónustan þarna var glötuð, maturinn hjá sumum var glataður og verðið var mjög hátt. En það skiptir ekki máli fyrir menn eins og okkur sem eiga ógrynni af peningum og létum við það ekki á okkur fá. Restinni af kvöldinu eyddum við í drykkju á skemmtistöðum, ekki margt frásögufærandi nema kannski ef þið skoðið myndirnar þá sjáið þið nokkrar myndir af áfengis-dauðu fólki og okkur félögunum saman á mynd. Þetta þótti okkur alveg hrikalega sniðugt og þykir enn. Það þarf vart að taka það fram að þetta kvöld enduðum við á KFC og rökræddum um að brýr séu ekki brýr nema þær séu yfir vatni, hlutinn sem er ekki yfir vatninu er ekki brú heldur bara steypa eða eitthvað. Elmar hafði heimildir frá ónefndum prófessorum um að þetta væri rétt hjá sér. Ég er enn ekki viss en ef einhver veit þetta með vissu má hann endilega setja athugasemd hér fyrir neðan.

Daginn eftir sveik Björn okkur Elmar og læddist út ásamt Gísla, Steinari og Þóru niður í bæ til að fá sér síðasta KFC-inn í bili. Við hittum hann seinnipartinn niðri í bæ og drógum hann með okkur í lest heim.
 Þá er þessari sögustund af Prag lokið. Ég þakka öllum sem nenntu að lesa þessa þvælu. Endilega komið með athugasemdir ef þið hafið skoðun á einhverju eða ef eitthvað er ekki ljóst.

Kær kveðja,
 

Rúnar Árnason


Ein grosses Bier bitte...

Kaldur bjór og gott veður

10. október 2006 klukkan 22:18
Jæja, ég var að fatta það að það er orðið soldið síðan að ég bloggaði hérna síðast. Þannig að ég ætla að leyfa ykkur að sjá hvað við erum búinn að vera að gera af okkur undanfarið...

Ég fékk kærkomna heimsókn frá minni heittelskuðu Sæunni síðasta miðvikudag. Það var allger snilld að fá hana hingað og tókum við helgina í Vín og vorum þar á hóteli sem var frekar flott. Komumst þar inn þar sem að hótelið sem við áttum að vera á klúðraði bókuninni (eða ég, man það ekki) og átti ekki rétt herbergi fyrir okkur. Þannig að við vorum bara flutt á flottara systur hótelið neðar í götunni fyrir sama verð. Ekki slæmt það. Við eyddum síðan helginni í Vín og mar kynnti henni fyrir Vín og ýmsum pöbbum þar á milli :) Voða nice, hehe.

Rúnar fékk einnig heimsókn, reyndar þar síðasta föstudag frá Íslandi. Hildur kom til að sparka aðeins í rassinn á honum og segja honum að gera eitthvað í þessu líferni sínu. En eins og sumir vita að þá er Rúnar eiginlega ekkert í þessum skóla. Rúnar sást lítið eftir það og eyddi mest öllum sínum tíma inni í herbergi með konunni. Þannig að það hefur verið helvíti gaman hjá honum undanfarið.

Björn Guðmundsson var soldið mikið með írunum um helgina þar sem að ég og Rúnar vorum vant viðlátnir og tók gott djamm með þeim og Marinu á fimmtudaginn var. Þar kítku þau á eitthvern snilldar klúbb í Vín þar sem að áfengið flæddi og stelpurnar köstuðu sér (ekki) á Bakkusinn. Stemmningin var víst þannig að það var bara bali sem var fullur af klaka og bjór í sem liðið gat bara gengið í. Öss, það er eitthvað fyrir mig mar. ÉG ÞANGAÐ!
Hann skellti sér síðan með Andy, Paul, Amy og Kenan til Graz á laugardaginn þar sem að Andy var að spila rugby með liðinu hérna í Wr. Neustadt. Það þarf varla að nefna það þar sem að Björn Guðmundsson og írar voru saman að það endaði í brjáluðu djammi einnig.
Þannig að þetta hefur verið helvíti góð sl. vika fyrir alla held ég bara og ég tala nú ekki um það sem framundan sjallala!


NÆSTA HELGI!
PRAG!
Næstu helgi erum við félagarnir að fara að skella okkur til PRAG að heimsækja Gísla og Danna Tiger. Fáum að gista hjá þeim um helgina og erum svo boðnir í partý á laugardagskvöldinu til Kristjáns og Heiðars Lárs. Fyrir þá sem ekki vita að þá eru þetta félagar og góðir vinir okkar frá Bifröst. Þar verður kennt PRAG-búum að djamma og skoðað sig um einnig, verðum að vera soldið menningarlegir líka. Þar er planið að sýna þeim hvernig á að drekka ABSYNTH! Ó, JÁ! Ég er búinn að lofa því að ég ÆTLA ekki að týnast í PRAG og ég ÆTLA ekki að segja brandara um eitthvern sem situr með mér á borði á erlendur tungumáli! SKJALFEST! Þannig að þið verðið að bíða eftir myndum og frásögnum frá þeirri ferð fram yfir helgi.
En núna held ég að ég fari að gera eitthvað skemmtilegra heldur en að sitja fyrir framan tölvuna og er að spá í að skella mér niður til Bjössa og Rúnars og láta þá elda fyrir mig eitthverja flotta svínasteik og svo erum við að fara að vígja nýju Rauðvínsglösin...

Later...
Elmario Da Vinci

P.s. komnar fleiri myndir frá Oktoberfest og Schönbrunn...
Ein grosses Bier bitte...

Matargerð Íslendinga

03. október 2006 klukkan 16:11
Það er mest lítið að frétta af okkur hérna... allt gott reyndar. Skólinn er byrjaður að taka sinn toll (sérstaklega hjá Elmari) og maður er byrjaður að læra soldið hérna, ég er búinn að fara í eitt próf og er að bíða eftir einkunn, Elmar fer í próf á morgun.

Við fórum til Vín á föstudaginn síðasta og fórum í hallargarðinn Schönbrunn (myndir á myndasíðunni) og þetta er þvílíkt flott, höllin kannski ekkert brjálæði en hallargarðurinn er mjög flottur, væri alveg til í að vera með svona garð (ef ég þyrfti ekki að halda honum við sjálfur;) ). Eftir Vínarferðina fórum ég, Rúnar og Meni að sækja Hildi uppá flugvöll og svo var smá sötur um kvöldið eins og venja er hjá góðu fólki.
Á laugardaginn var afmæli hjá einni af Finnsku stúlkunum hérna, Satu, og náði hún þeim myndalega aldri 26ára. Við fórum góður hópur út að borða á sæmilega fínan en ódýran stað og það var mjög gaman, allir prúðbúnir og fínir, átum góðan mat og drukkum bjór, síðan í lokin tókum við eh hindberjasnafs sem er það versta sem ég hef nokkurntíman smakkað. Þegar heim var komið var skipt um föt, náð í ódýran bjór og setið að drykkju í garðinum frameftir nóttu.
Sunnudagskvöldið fór í keilu og það er skemmst frá því að segja að ég tapaði báðum leikjunum (vann samt samanlagt) þeim fyrri með einum pinna í síðasta skotinu og þeim seinni með sex pinnum, einnig í síðasta skotinu... það er kannski óþarfi að taka það fram en báðum þessum leikjum tapaði ég fyrir stelpum ;)

Jæja það er annas lítið að frétta héðan fyrir utan það að öll kvöld er ég eða við strákarnir frá íslandi beðnir um að halda kennslu í matargerð, málið er að við þurfum að nota sameiginlegt eldhús til að elda matinn og allir á ganginum öfunda okkur því maturinn okkar lyktar svo vel og lítur svo vel út, kvöld eftir kvöld ;) þannig að ég er búinn að lofa því að kenna þessum stelpum að elda og verð líklega að standa við það... kannski maður eldi ofaní þennan góða hóp sem hefur myndast í kvöld ;)

kv. frá Austurríki
Bjössi aka Bjornzy
Ein grosses Bier bitte...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hver haldið þið að sé búinn að drekka mest hérna úti?

Innskráningar kubbur